Nutram er Kanadískt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu næringaríks hunda- og kattafóðurs.
Hjá Nutram starfar hópur vottaðra næringarfræðinga sem sérsníða hverja uppskrift katta- og hundafóðurs til að hámarka upptöku næringarefna.
Með hágæða náttúrulegum hráefnum mun gæludýrið þitt njóta ávinnings hvers innihaldsefnis eins og náttúran ætlaði.
Í Nutram er aðeins notast við hráefni í hæsta gæðaflokki. Nutram notar engin uppfyllingarefni í sinni framleiðslu á katta og hundamat. Má þar nefna til dæmis að það er ekkert mais, ekkert soya protein, ekkert hveiti og ekkert ger í Nutram hunda og kattafóðri.
Nutram hefur unnið til margra verðlauna og má sjá nokkur þeirra hér að neðan.
Einstök nálgun Nutram að næringu í hundamat og kattamat hefur hjálpað Nutram að vinna nokkur eftirsóttustu verðlaun og hrós á sviði gæludýrafóðurs.
Pet Business segja Nutram sem eina mest spennandi nýjung á sviði gæludýrafóðurs. „Best in Breed verðlaunin“ 2016.
Pet Product News verðlaunuðu Nutram einnig með “Inventory Essentials” 2016 og segja Nutram nauðsynjavöru.
Ritstjórn The Whole Dog Journal setja aðeins allra besta og næringarríkasta gæludýrafóðrið á sinn lista. Það er sannur heiður fyrir Nutram að vera á þeim lista sem framúrskarandi þurrfóður fyrir ketti og hunda.
Animal Wellness Magazine hefur sagt að Nutram hafi framúrskarandi gæði og stuðli að vellíðan hunda og katta í flokki fóðurs þar sem náttúrulegar og heilnæmar vörur eru í fyrirrúmi.